jæja kannski maður geri tilraun til að bjarga þessari
blessuðu síðu? Ég segji nú bara allt gott. Var að borða eitthvað
makkarónu-osta-dæmi sem var mjög gott og ég er mjög
södd.
Ég
er bara að vinna á leikskólanum hjá öllum litlu krúttunum sem er
algjört æðiJ
Mjög ánægð með að hafa farið að vinna þarna. En
ætla samt bara að vera þarna fram á haust því þá ætla ég í Háskóla
en ekki spyrja mig hvað ég ætla að verða þegar ég varð stór eða
stærri eða eldri því ég veit það ekki! það kemur bara í
ljós....vonandi.
Er
orðin ansi spennt fyrir sumrinu á Ródoos!!! og svo ætla ég líka til
DK í sumar þannig að þetta verður skemmtilegt sumar. Ég elska að
fara til útlanda!
Ég
er samt alveg Ótrúlega hissa og hneyksluð á þessu
breiðavíkur(breiðuvíkur?)máli og öllum þessum nauðgunarmálum sem
eru búin að koma upp. ég trúi því varla að það sé til svona fólk!
pælið í þessu! Maður heldur að allt sé svo gott á litla góða
Íslandi en neinei það er bara allt morandi í einhverjum perrum!!!
Maður fer samt að pæla, fyrst enginn vissi um þetta, hvað fleira
vitum við ekki? það er örugglega alveg hellingur....
En
tölum um eitthvað skemmtilegra.....Júróvision! ég held með
Heiðu...ég og heilinn minn...hehe ég samt var voða lítið að hlusta
á lagið, ég var bara að hlægja og dáðst að því hvað þetta var
frábært búningarnir og heiða og allt heheh en allavega áfram Heiða
og heilinn hennar. Annars verð ég eila að segja það sama og ALLIR
aðrir sem á annað borð tjá sig eitthvað um þessa keppni að lögin
eru eiginlega ekkert góð. Mig langar dáldið til að heyra þessi 180
lög sem komust ekki áfram í þessari keppni. hversu léleg eru
þau!
Júróvision er samt alltaf júróvision og það er alltaf gaman að
horfa á það. Veit eila ekki af hverju....Sigga?...en þannig er það
bara....bíð spennt eftir keppninni í maí í Helsinki
Jæja segjum þetta gott....ég er allavega búin að gera smá
björgunar aðgerðir, veit ekki hvort þær heppnist....stelpur þið
verðið að halda áfram!
kv. Siiiasta(eins og ég er kölluð þessa dagana af vinum mínum
á Skógarbæ
)